11.10.2008 | 10:25
Nýtt málverk
Þetta er alveg ný mynd, akrýl á pappír 40x50 cm. Ég er ekki búinn að finna nafn á hana.
Einhverjar tillögur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.10.2008 | 09:21
Hin mikla arfleifð Íslands. Spádómar Rutherfords og Friðarsúlan
Enski pýramídafræðingurinn Adam Rutherford þóttist sjá táknrænar vísbendingar í pýramídanum mikla í Egyptalandi um stórbrotið mikilvægi Íslands varðandi nýskipun heimsins sem hann trúði að væri í vændum. Bók hans, ,,Hin mikla arfleið Íslands" (Iceland´s Great Inheritance útg. 1937) segir í formála:
Ísland er eitt af merkilegustu löndum heimsins, og blöðin, sem hér fara á eftir, hafa að innihaldi sönnun þess, að þessari litlu þjóð, Íslendingum, sé ætlað að leysa af hendi undursamlegt og göfugt hlutverk við fyrirhugaða stórviðburði í náinni framtíð. Höfundurinn er sannfærður um, að þetta mikla ætlunarverk Íslendinga muni verða til blessunar, eigi aðeins fyrir Íslendinga sjálfa, heldur og fyrir frændþjóðir þeirra, Norðurlandabúa, Engilsaxa og Kelta. Ég vil óska þess, að bæklingur þessi megi verða að nokkru gagni í því að hjálpa til að búa Íslendinga undir það, að taka við hinni miklu arfleifð sinni.
Í þessu smáriti er að finna tvo spádóma um Ísland og íslensku þjóðina.
Seinni spádómurinn á að gerast í ragnarökum núverandi menningar. Ísland verður eins og ljósdepill í myrkvuðum heimi og þá ,,munu Íslendingar taka sér fyrir hendur að leysa viðfangsefni, sem mikla blessun munu hafa í för með sér fyrir allt mannkynið". Íslendingar munu tendra það ljós, sem á eftir að valda andlegri endurvakningu er breiðist út með mörgum þjóðum. ,,Eldeyjan í vestri" á að verða oddviti eða ljósberi sem vísar mannkyni inn í nýtt tímabil sögunnar.
Kannski er friðarsúlan í Viðey ljósið sem spáð var fyrir. Það er sannarlega ekki vanþörf á andlegri endurvakningu í anda friðarboskapar Lennons og Yoko.
Og kannski erum við nú að upplifa inngangshlutskipti Íslands í því stóra verki sem því er fyrirhugað: Að vera staðurinn þar sem hin blinda peningatrú sigldi skipi sínu í strand. Þar sem lúxusfarþegaskipið brotnaði í spón og sökk til botns með öllu góssinu. Komust færri í bátana en vildu.
Í þjóðsögunum lesum við um tröll sem verða að steini þegar birtir af degi. Friðarsúlan var fyrst tendruð fyrir ári síðan og síðan hefur hægt og sígandi fjarað undan nátttröllum á fjármálamörkuðum um allan heim.
Ég er hvorki hjátrúarfullur né trúaður á spádóma, hef bara gaman af að skoða þessi mál í þessu samhengi og velta vöngum yfir morgunkaffinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.10.2008 | 18:55
Kapitalisminn með sína eigin snöru um háls
Heimurinn er ekki samur í dag og í gær. Við sem betur megum; hinn vestræni, hámenntaði, tæknivæddi, iðnvæddi og "siðmenntaði" heimur, innan við tuttugu prósent mannkyns, við erum að fara á taugum yfir fjármálahruni og væntanlegum sultarólarþrengingum. Við megum svo illa við því að missa spón úr aski okkar. Við megum bara alls ekki við því að láta eitt né neitt á móti okkur.
Restin af mannkyninu heldur bara áfram að mjólka grindhoraðar geitur og safna eldivið og rótarnhyðjum í eyðimörkinni. Heldur áfram að horfa á börnin sín deyja úr lyfja- og næringarskorti ofurseld náttúrulegu tíðarfari í lífi og dauða í keðjuverkun loftslagsbreytinga sem við erum völd að.
Þegar við komumst útúr okkar heimatilbúnu efnahagsþrengingum skulum við minnast þeirra, staðfestu þeirra og þolgæðis í þeirra endalausa dauðastríði. Það minnsta sem við getum gert er að þakka þeim fyrir að leyfa okkur að standa á bakinu á þeim.
Síðan skulum við hætta að lofsyngja frjálshyggjuna og kapitalismann; þessi sjálfstortímandi, úrkynjuðu afstyrmi sem allur heimurinn hlýtur að hafa viðbjóð á en keppist samt við að skera niður úr þeirra eigin snöru lifandi eða dauð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 10:55
Hvað er Evró-list?
Athyglisverð grein í Mogganum í gær 2 október. Tilnefningar til Turner-verðlaunanna eru þar sagðar umdeildar. Það er Richard Dorment, gagnrýnandi hjá Daily Telegraph sem deilir hart á tilnefningarnar:
"Þetta eru fjögur næstum því fullkomin dæmi um myndlist sem ég hef kallað Evró-list Það er nafn sem ég bjó til yfir tæknilega vandaða, bragðlausa og innihaldslausa list sem er einungis gerð fyrir alþjóðlega tvíæringa. Evró-listamenn byggja sinn starfsframa á því að gera list sem á ekki að höfða til almennra áhorfenda, heldur til sýningarstjóra."
Þarna er skeytum beint að listabatteríinu og stjórnendum þess, og listamönnum sem "kunna á kerfið". Þeir taka til sín sneiðina sem eiga hana.
Er þetta umdeild skoðun? Það væri nú aldeilis gaman! Þá eru menn væntanlega og vonandi að hnakkrífast um þetta mál á öllu útgáfusvæði Daily Tel. og kannski víðar.
Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að kópera grein Dorments í heild á frummálinu.
The Euro-artist builds up a successful career by making art intended to appeal not to the general public but to curators, and to be bought not by private collectors but by museums and private foundations. Often it is art about art or the making of art, and is based on the artist's extensive research into an esoteric subject of interest only to him or her.
Invariably its meaning is so opaque that it needs the intervention of the professional exhibition organiser to explain it, which is why you see two kinds of visitors at a Euro-art exhibition - the ordinary punters, who wander through these shows stupefied with boredom, and groups of people paying close attention to gallery guides explaining work that would otherwise be impossible to understand.
You don't have to be European to make Euro-art, and indeed one of its characteristics is that it can be shown anywhere in the world without causing so much as a ripple of controversy. For, although Euro-art is usually overloaded with content, it is never shocking, emotionally powerful, or visually interesting.
You may dislike Damien Hirst, the Chapman Brothers or any of the other YBAs, but, after Tate Britain's exhibition of the four artists shortlisted for the Turner prize you'll long for a little sex, politics, violence, even a joke or two. To spend time in this show is like spending the afternoon in the departure lounges of Heathrow, Schiphol, Tempelhof and Charles de Gaulle airports. Physically you've moved from place to place, but, at the end of the day, you don't know where you've been.
28.9.2008 | 12:56
Strandagaldur
Sniðugt hjá Strandamönnum að rækta þessa arfleifð sér til hagsbóta. Þetta er þeirra arfleifð umfram aðra landsmenn enda geisaði svæsin galdratrú fyrir vestan, eins og um alla Evrópu forðum daga. Eru til samtímaheimildir úr málsskjölum og er ljóst að margir fóru saklausir á bálköstinn því ekki batnaði kerlingunni verkurinn í síðunni eftir að galdrahundurinn var brenndur. Ég heyrði útvarpserindi um þessi mál nýlega og voru tiltekin dæmi um réttarfarsleg afglöp. Hvað sem því líður eru Vestfirðir rétti staðurinn fyrir galdrabændur í kynngimagnaðri náttúrufegurð.
Það er alveg ljóst að galdratrú var alla tíð sterk hér og eimdi lengi eftir af henni. Því var almennt trúað að Bólu-Hjálmar væri ákvæðaskáld og hann virðist hafa trúað því sjálfur. Það má lesa úr hans eigin athugasemdum við ýmsa kviðlinga sína og kvæði. Þar að auki var hann rammskyggn og forvitri. Fólki stóð beygur af honum, óttaðist að verða fyrir hinu eldsnara og tindrandi augnaráði hans eins og því er lýst af samtímamanni. Einu sinni var honum boðið til baðstofu þar sem sátu vinnuhjúin. Þau tíndust þá út eitt af öðru skjálfandi á beinunum af hræðslu við örvasa gamalmennið.
|
Þjóðverjar sækja í galdur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.9.2008 | 10:10
Speki matsmanna í Lesbókinni
Ég get ekki dæmt um Bubba á þessum nótum, en mér þykir alltaf vænt um Ísbjarnarblúsinn. Það er í gangi einhver endurskoðun spekinga á síðum Lesbókarinnar, hvaða bækur eru ofmetnar og hvaða tónlist. Það væri fróðlegt að sjá svona greiningu á myndlist. Svona gæðamat er örugglega háð sveiflum tíðarandans. Í dag er sagt að tiltekið listaverk hafi elst vel eða illa og tuttugu árum seinna snýst matið við. Það hlýtur að þurfa mikinn speking til að fella hinn eina sanna dóm. Það er etv. auðvelt að benda á ofmetin fyrirbæri, bækur eða tónlist, en það er ekki þarmeð sagt að niðurstaðan sé endanlega rétt mat.
|
Bubbi hefur gert betur en á Konu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2008 | 09:35
Sinn eigin tón
"Listamenn eiga ekki að fylgja reglum heldur búa þær til". Eitthvað á þessa leið mælti tónskáldið Atli Heimir í viðtali í sjónvarpinu nýlega. Ekki að fylgja reglum sem aðrir hafa sett heldur skapa sínar eigin, finna sinn eigin tón og fylgja honum.
18.9.2008 | 09:44
Veggmálverk
Það rifjast upp margar minningar við að skoða þessa mynd. Þetta veggmálverk var í kaffisal Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, málað af Stefáni Lárussyni í kringum 1970. Þegar Bæjarútgerðarhúsið var rifið var tekin sú ákvörðun af hafnfirskum bæjaryfirvöldum að varðveita myndina. Veggurinn var sagaður út, settur í rammgerðan kassa og komið í geymslu á jarðhæð í Dverghúsinu við Lækjargötu. Því miður tókst svo illa til í tilfæringum þar nýverið að veggurinn klofnaði í tvennt. Nú liggur veggurinn á gólfinu í tveimur hlutum og vandséð hvernig hann verður færður úr stað án frekari skemmda. Það á að rífa Dverghúsið svo að veggurinn verður ekki þar til eilífðar. Það þarf að slá utanum hann kassanum aftur og búa svo um hnúta að hann skemmist ekki meira. Og helst af öllu að koma honum á einhvern stað þar sem myndin fær að njóta sín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2008 | 11:46
Bjarni Bernharður - Kaleikur
Kaleikur Bjarna Bernharðs er undir leslampanum, ekki löng bók, rétt rúmar 100 bls. Þar eru engar málalengingar, Bjarni er fáorður og gagnorður um lífshlaup sitt í hverjum kafla og hógvær þegar hann lýsir upprisu sinni og endurkomu. Ekki kann ég að gera bókinni nein frekari skil á gagnrýninn hátt - var ekki ætlunin heldur. Bjarni sogaðist inní svarthol geðveikinnar með hörmulegum afleiðingum og margra ára frelsissviptingu á réttargeðdeild. Hann tæmdi sinn bikar í botn og það var djúpur og víður kaleikur. Haldreipi hans í útlegðinni var listin, sköpunarþrá listamanns sem skyldi fullnægt, og staðfastur ásetningur í því að byggja sig upp.
Það eiga ekki allir afturkvæmt, margir eru beygðir og brotnir eftir skipbrot í lífinu og halda sér til hlés. En ekki verður annað séð en Bjarni standi traustum fótum í mannheimum eftir endurkomuna og hefur síðan tekið til óspilltra málanna, galvaskur í ætlunarverki sínu listinni í ljóðum og málverkum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)




hallormur
hugdettan
kaffi
raudka
ransu
gudnibloggar
evabenz
heidistrand
lalli
hlynurh
safi
ragjo
mariakr
oskvil
mynd
aslaugas
krissa1
madddy
birgitta
evags
fridrik-8
ludviksson
grunar
krummasnill
vefritid




